Síðastliðinn mánudag (16. nóvember) var dagur íslenskrar tungu. Við héldum hann hátíðlegan með því að bjóða 1. bekk í grunnskólanum í heimsókn til okkar. Við hittumst öll í salnum okkar og þar var hver deild með söngatriði og 1. bekkur með sitt atriði. Í lokin fengum við ávexti og popp. Þetta gekk mjög vel hjá öllum og var gaman. Myndir af atburðnum eru komnar inn á heimasíðuna:-)