Í gær (mánudaginn 9. nóvember) fóru starfsmenn Andabæjar í heimsókn á fjóra ólíka staði til að kynna sér starfsemina þar. Þessir staðir eru vinnustofa Skálatúnsheimilisins, Waldorf leikskólinn Ylur í Lækjarbotnum, leikskólinn Álfheimar á Selfossi (Grænfánaleikskóli) og leikskólinn Örk á Hvolsvelli. Á Örk vinnur Unnur Óskarsdóttir sem var að vinna hjá okkur. Þetta var mjög lærdómsrík og skemmtileg ferð. Gaman að sjá mismunandi leikskóla og sjá hvað verið er að gera þar.