Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Leikskólinn Andabær
   Arnarflöt 1
   311 Borgarnes

Símanúmer:
   Aðalnúmer:      437 0120
   Leikskólastjóri: 433 7170
   Goðheimar:      433 7172
   Álfheimar:        433 7173
   Hulduheimar:    433 7174
Netfang:     andabaer@borgarbyggd.is
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
3. maí 2011

Námskeið um einhverfu

Fimmtudaginn 5. maí kl. 20:00 verður haldið námskeið um einhverfu á vegum fjölskyldusviðs Borgarbyggðar í samkomusal Menntaskólans í Borgarnesi.  Námskeiðið er ætlað fólki á einhverfurófi, fjölskyldum þess sem og öðrum þeim sem áuga hafa.  Námskeiðið stendur yfir í tvo og hálfan til þrjá tíma.

Þann sama dag kl. 13:30 verður námskeiðið haldið fyrir starfsfólk grunnskólanna í Borgarbyggð.  Það stendur einnig opið öðru starfsfólki sem starfar með fólki á einhverfurófi í sveitarfélaginu, sem og þeim sem komast ekki um kvöldið.

 

Enginn skráning - bara mæta!

 

Innihald námskeiðsins:

Önnur skynjun ólík veröld, markviss nálgun

 

Jarþrúður Þórhallsdóttir fötlunarfræðingur og einhverfuráðgjafi segir frá meistararannsókn sinni Önnur skynjun - ólík veröld:  Líf fólks á litrófi einhverfu.  Rannskóknin byggir á viðtölum við fólk á einhverfurófi, þar sem spurt var út í lífshlaup þess.  Sérstök áhersla var lögð á skynjun og skynúrvinnslu og áhrif hennar á daglegt líf.  Skólaganga, gildi greiningar inn á einhverfuróf og sjálfsskilningur var einnig sérstaklega skoðað.

 

Ásgerður Ólafsdóttir sérkennari og einhverfuráðgjafi ræðir um skipulega kennslu, TEACCH- hugmyndafræðina og ýmsar leiðir til að efla félagsfærni.

 

EKKERT KOSTAR INN Á NÁMSKEIÐIÐ

 

Fjölskyldusvið Borgarbyggðar.

 

 

útskriftarferð í Vatnaskóg 11 maí 2012