Grænfánafundur 22. okt. 2008
Mættar voru: Valdís, Anna Sigga, Áslaug, Sigríður (fulltrúi foreldra), Ágústa (nemi) og Þórunn.
Við fórum aðeins yfir stöðuna – hvernig erum við að standa okkur?
Ef gátlistinn frá Landvernd er skoðaður þá sjáum við að mjög margt erum við að gera vel en sumt megum við bæta og gera enn betur. Eftirfarandi ætlum við að vinna betur að:
- Kertagerð – við eigum töluvert af kertaafgöngum og megum gjarnan nýta þá betur. Komið hefur í ljós að betra er að útbúa kerti í krukkur eða önnur ílát heldur en að steypa þau í mót því þá geta börnin tekið meiri þátt í kertagerðinni.
- Pappírsgerð – Enn vantar okkur nýjan sprota til að tæta pappírsmassann og vonumst við eftir að úr því verði bætt fljótlega.
- Matarafgangar – Fara á hverjum vetri í heimsókn og skoða moltugerðarvélina svo börnin séu betur meðvituð hvað gert er við matarleifarnar.
- Finna leiðir til að minna foreldra á að hér sé tekið við rafhlöðum, gleri, kertum og alls kyns ílátum undan matvælum og öðru. Það getur nýst í könnunarleik og skapandi starf. Þurfum kannski að vera duglegri að nýta það í skapandi starf sem okkur berst svo það safnist ekki bara fyrir í geymslum.
- Mikilvægt er að ALLIR sem tengjast leikskólanum; foreldrar, börn og starfsfólk viti um Grænfánastarfið sem hér fer fram og hvað það þýðir. Pössum upp á það.
- Vera duglegar að fræða börnin um það af hverju við séum með Grænfánann – hvað þýðir það að vera Grænfánaleikskóli. Nýta t.d. hópastarfið til þess.
Athuga þarf hvort gámar séu á Hvanneyri undir mjólkurfernur, gler og málma.
Í fyrra ætluðum við að standa fyrir hreinsunardegi hér á Hvanneyri en hættum við því nemendur LBHÍ urðu fyrri til. Við látum samt ekki deigan síga og hefur verið ákveðið að láta verða af þessu í vor. Hugmyndin er að við byrjum fyrst að hreinsa með börnunum í kringum leikskólann og svo geta foreldrar og fjölskyldur barnanna haldið áfram eftir leikskóla. Skoðum þetta nánar síðar.
Næsta vor ætlum við að sækja um Grænfánann í 3. sinn. Það þýðir að í vetur þurfum við að bæta við a.m.k. tveimur nýjum umhverfismarkmiðum.
Ræddar voru ýmsar hugmyndir og þetta bar á góma:
- Spara orku/vatn.
- Minnkun á pappírsþurrkum og bleiublautþurrkum (notum handklæði/þvottapoka)
- Kaupa umhverfisvænar plastvörur eins og mögulegt er (forðast pvc-plast)
- Minnka notkun á plastpokum í leikskólastarfinu með því að útbúa taupoka fyrir hvert barn sem í eru látin óhrein/blaut föt sem senda þarf heim með börnunum. Hægt væri að gera pokana persónulega og tengja við heimilin með því að fá foreldra til að koma með efni í pokana, t.d. gömul koddaver, viskustykki eða annað sem til fellur heima.
Þórunn þarf að ræða við verkefnisstjóra hjá Landvernd til að kanna hvort þessi markmið séu gild og hversu mörg við þurfum fyrir næstu umsókn.
Undanfarin ár hefur okkur staðið til boða að hengja upp listaverk barnanna í matsalnum í Ásgarði. Hafa þá deildirnar þrjár skipst á að sýna afrakstur hverrar deildar. Viljum við endilega halda þessu áfram og ætlum að athuga hvort við fáum það.
Áslaug sagði frá því að Árdís kennari í Andakílsskóla hefði fengið hugmynd um að gefa út fréttabréf sem borið yrði í hús á Hvanneyri og þar yrði kynnt starfsemi leik- og grunnskólans. Skoða á þetta betur.
Fundi slitið.
Grænfánafundur 1. október 2007
Mættar voru: Þórunn, Valdís, Gro, Áslaug og Ásta (í stað Kötu).
Komin er í hús Ársskýrsla Landverndar og eru allir hvattir til að skoða hana (í möppu). Með ársskýrslunni fylgdi hvatningarbréf frá Landvernd til allra Grænfánaskólanna.
Við þurfum að fara að vinna að markmiðum okkar og nú er efst á baugi að koma “veggnum okkar” á laggirnar. Hver deild þarf að finna vegg á deildinni sem hentugur er fyrir fréttir af Grænfánastarfi.
· Kom upp tillaga um það að skanna skírteinin sem við fengum frá Landvernd um það að Andabær er Grænfánaleikskóli, þannig að hver deild geti hengt upp skírteini á vegginn sinn. Þórunn ætlar að senda fyrirspurn til Rannveigar hjá Landvernd um það hvort þetta sé í lagi.
· Við ætlum einnig að biðja Sollu um að útbúa plagg með merki Grænfánans fyrir allar deildir til að hengja á vegginn.
· Á vegginn er hugmyndin að hengja t.d. upplýsingar af umhverfisstarfi barnanna í leikskólanum; myndir og texti og skreyta með t.d. greinum, laufum og slíkum efnivið úr náttúrunni.
Við ætlum að finna okkur stað úti í nánasta umhverfi okkar til að hirða um, tína rusl og fylgjast með árstíðabreytingum þar. Ákveðið var að nota hópastarfshópana í þetta, þannig að hver hópur finni sér sinn stað.
Við þurfum að vera duglegri að vera duglegri að kynna Grænfánaverkefnið fyrir nánasta samfélagi okkar og vekja athygli íbúanna hér á umhverfisvernd. Lagt var til eftirfarandi:
· Ræddum um það að halda áfram að nýta okkur vegginn sem Hella bauð okkur afnot af úti í Ásgarði. Þar fékk Andabær að kynna listaverk barnanna. Við ætlum okkur að skipta þessu markvissara milli deilda þannig að hver deild fái vegginn í 2 mánuði í senn. Þar væri t.d. ekki einungis hægt að hengja upp listaverk barnanna heldur líka setja upp ljósmyndir úr starfinu með börnunum. Valdís tók að sér að spyrja Hellu hvort veggurinn standi okkur enn til boða.
· Komast að því hvenær dagur umhverfisins er og skipuleggja vel fyrir þann dag verkefni í þágu umhverfisverndar t.d. að fá staðarbúa í ruslatínslu, að spara bílinn þennan dag eða eitthvað slíkt.
· Senda frétt í Skessuhorn og myndir frá kartöfluuppskeru Andabæjar. Þórunn sér um það.
Nýr fulltrúi foreldra í Grænfánanefndinni er Sigríður Jóhannesdóttir, móðir Berghildar Aspar.
Við ræddum það að mikilvægt er að allir starfsmenn fari vel með pappír í leikskólanum og að við nýtum hann eins vel og mögulegt er. Við þurfum samt sem áður að finna lausn á því hvað við gerum við afskorninga af t.d. vélritunarpappír sem flæðir hér um allt. Allar hugmyndir verða vel þegnar og starfsfólk deildanna falið að leggja höfuð í bleyti.
Grænfánanefndarfundur, nóv. 2006
Mættar voru: Þórunn, Katrín, Valdís, Áslaug og Gro.
· Fórum í gegnum gátlista sem gefinn er út af Landvernd, skildum hluta eftir sem Áslaug ætlar að fara yfir með börnunum. Gerðum okkur ljóst að þóp að Grænfáninn sé fenginn þá er ýmislegt sem er ábótavant og gott er að hafa þennan gátlista til að fara yfir reglulega.
· Við ræddum um mikilvægi þess að kaupa inn í stórum pakkningum og reyna af fremsta megni að versla í heimabyggð.
· Við komumst að því að ýmislegt sem við erum að gera er umhverfisvænt t.d. notum við smekki og þvottapoka við matarborðið sem þvegið er og notað aftur og aftur. Allar tuskur og handklæði eru einnig fjölnota og við gerðum okkur ljóst að í leikskólanum er ekki notaður pappír til að þurrka upp bleytu.
Fundi slitið.
Umhverfisnefndarfundur 03.02.05
· Mættir voru: Sólrún Halla, Anna Sigríður, Valdís, Helgi Björn og Gro.
· Fórum yfir skrefin sjö og þar sáum við að helst vantaði upp á sjöunda skrefið en það er umhverfisstefna leikskólans. Þannig að við punktuðum niður það sem við vildum hafa í þeirri stefnu.
- markmiðin eru okkar starfsreglur.
- Umhverfisnefndin setti sér markmið og leiðir til að þróa starfið.
- Krakkarnir taka virkan þátt í samverustundum.
- Höfum hug á setja niður matjurtir, jafnvel reyna að fá útsæði hjá foreldrum.
- Sá fræjum t.d. tómötum, kryddjurtum og gúrkum.
- Hópastarfið nýtum við einnig í náttúruskoðun og reynum að nýta það sem náttúran vill losna við í ýmiskonar verkefni.
- Tínum rusl þegar við sjáum og getum.
- Ætlum að setja upp skilti um að fólk eigi að drepa á bílunum. Valdís ætlar að athuga með kaup á svoleiðis skilti, annars munum við útbúa það.
- Getum ekki alltaf verið að slökkva og kveikja ljósin í leikskólanum vegna þess að í þeim eru svokallaðar sparperur og mesti kostnaðurinn við rekstur þeirra er þegar kveikt er á þeim.
- Við viljum sýna krökkunum ferlið frá matartíma að Moldu. Börnin taka virkan þátt í því að ganga frá og fara með lífrænan úrgang í Moldu.
- Það sama viljum við gera með kertin. Fá kertastubba héðan og þaðan og endurnýta þá til að gera ný kerti.
- Á leikskólanum er að mestu verið að nota örtrefjaklúta við þrif á leikskólanum.
· Valdís sagði okkur það að hún væri að athuga með nýtt uppþvottavélarefni sem er ekki hættulegt börnum.
· Einnig ætlar hún að athuga með kostnað á lífrænu efni til þess að þvo gólf með.
· Við töluðum einnig um það hvernig þemaverkefnið okkar samtvinnast við umhverfisstefnu leikskólans. Hreyfingin – náttúruskoðun – vettvangsferðir o.fl.
Fundi slitið.