Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Leikskólinn Andabær
   Arnarflöt 1
   311 Borgarnes

Símanúmer:
   Aðalnúmer:      437 0120
   Leikskólastjóri: 433 7170
   Goðheimar:      433 7172
   Álfheimar:        433 7173
   Hulduheimar:    433 7174
Netfang:     andabaer@borgarbyggd.is
Atburðadagatal
28
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
25. febrúar 2010

Andabær 1. árs

Í gær, miðvikudaginn 24. febrúar var eitt ár liðið frá því að Andabær flutti í nýtt húsnæði.  Að því tilefni skreyttum við leikskólann, höfðum opið á milli deilda og skemmtum okkur.  Rétt fyrir hádegi hittumst við í salnum til að syngja saman en þá fengum við óvænta heimsókn frá grunnskólanum.  Þau fjölmenntu til okkar og sungu afmælissönginn fyrir okkur og með okkur.  Þetta var mjög skemmtilegt og gaman var að fá þau í heimsókn.  Í kaffitímanum eftir hádegi var búið til langborð frammi á gangi og allir borðuðu saman afmælisköku.

meira...
25. febrúar 2010

Starfsmannafundur

Mánudaginn 8 mars lokar leikskólinn kl. 13:00 vegna starfsmannafundar.

meira...
25. febrúar 2010

Leikskólakennaranemar

Leikskólakennaranemarnir okkar, þær Ágústa Hrönn Óskarsdóttir og Elín Guðmundsdóttir eru komnir aftur til okkar og verða til 12. mars.   Elín á Álfheimum hjá Kötu og Ágústa á Hulduheimum hjá Ástu.  Bjóðum við þær velkomnar til okkar aftur.

meira...
16. febrúar 2010

Starfsdagur

Mánudaginn 22. febrúar verður lokað í Andbæ.  Þann dag ætlar starfsfólk leikskólans að sækja tvo fyrirlestra í Andabæ.  Guðmundur Finnbogason, heimilfræðikennari  í Lauganesskóla verður með fyrirlestur um útikennslu frá kl. 9-14 og eftir það verður Sigursteinn Máson með fyrirlestur um andlega sjálfsvörn.  Hann fjallar um leiðir til að vernda geðheilbrigði og varnir gegn neikvæðum hugsunum og áreiti í samskiptum fólks.  Einnig fer hann yfir hugrænar leiðir til að ná utan um eigið hlutverk og tilgang á mismunandi tímabilum í lífi fólks.  Fjallað verður um óttann og það sem raunverulega skiptir máli í lífinu. 

Starfsmenn leikskólans Hnoðrabóls í Reykholtsdal verða með okkur þennan dag.

meira...
16. febrúar 2010

Öskudagur

 Á morgun Öskudag förum við í göngutúr í fyrirtæki að syngja fyrir fólkið þar.  Kannski fáum við eitthvað góðgæti í poka:-)  Við leggum af stað upp úr kl. 10:00 og förum í Ásgarð, Hvannahúsið og Rannsóknarstofuna.  Þeir sem vilja eru hvattir til að koma í öskudagsbúningum.

meira...
16. febrúar 2010

Þorrablót í Andabæ

Föstudaginn 12. febrúar var Þorrablót í Andabæ.  Búið var til langborð á ganginum og þar borðuðu allir saman.  Allir voru búnir að búa til höfðufat fyrir viðburðinn.  Mjög skemmtilegt og vel tókst til.  Endilega kíkið á myndir af viðburðinum hér á síðunni.

meira...
29. janúar 2010

Tannverndarvika

Fyrsta vika febrúarmánaðar leggur Lýðheilsustöð áherslu á að við höfum tannverndarviku.  Þá ætlum við í Andabæ að leggja áherslu á tannvernd.  Vakin er sérstök athygli á því að öllum þriggja og sex ára börnum stendur til boða ókeypis eftirlit hjá tannlæknum sem vinna í umboði Sjúkratrygginga Íslands. (www.lydheilsustok.is/greinar/greinasafn/tannheilsa/nr/2722).

 

Einnig er hér blað með einföldum og skýrum ráðum um tannburstun.

meira...
28. janúar 2010

Dagur leikskólans

Laugardaginn 6. febrúar er Dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan.

Við í Andabæ ætlum að halda hann hátíðlegan með þeim hætti að bjóða foreldrum að koma í kaffi til okkar frá kl.8:00-10:00 föstudaginn 5. febrúar.  Vonumst við til með að sjá sem flesta.

meira...
18. mars 2010
12. apríl 2010
19. apríl 2010
5. maí 2010
Hópastarf hjá Tígrísdýrahóp á Álfheimum